• Rafræn vöktun banner

 

Ábyrðaraðili vöktunarinnar er:

Terra umhverfisþjónusta hf., kt. 410283-0349, Berghellu 1, 221 Hafnarfirði, terra@terra.is

Tilgangur vöktunarinnar:

Í öryggis- og eignavörsluskyni, ásamt vöktun búnaðar og véla í eigu félagsins.

Heimild til vinnslu:

Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna Terra af öryggis- og eignavörsluskyni og til vöktunar búnaðar og véla.

Tegundir persónuupplýsinga:

Myndavélar í beinu streymi eru hugsaðar til að auðvelda starfsfólki og stjórnendum að hafa yfirsýn yfir starfssvæði. Unnið er með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.

Upptökur geta verið notaðar til að:

  • Greina orsakir frávika er lúta að öryggis (slys, tjón, atvik, næstum atvik) og eignavörslu, bæði hvað varðar búnað og starfsfólk, til að unnt sé að koma í veg fyrir að þau endurtaki sig.
  • Ef grunur vaknar um refsiverða háttsemi.
  • Greina orsakir tjóna á eignum og búnaði, í því skyni að draga úr slíku tjóni í framtíðinni.
  • Greina frammistöðu búnaðar og bilanaorsakir.

Viðtakendur:

Allt myndefni er aðgengilegt ákveðnum hagsmunaaðilum hjá Terra sem hafa starfi sínu vegna aðgang að vöktuninni. Efni með upplýsingum um slys eða refsiverðan verknað getur jafnframt verið afhent lögreglu. Einnig getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls. Sjá að öðru leyti 5. og 10. gr. reglna nr. 50/2023 um rafræna vöktun.

Varðveislutími myndefnis:

Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Einnig kann myndefni að vera geymt ef það er talið geta nýst í fræðslu til þess að auka öryggi á starfssvæðum Terra. Notkun slíks myndefnis er einungis gert með skriflegu samþykki þeirra sem birtast á því.

Réttindi einstaklinga:

Þú átt rétt á að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd:

Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.

 

Ef vakna frekari spurningar vinsamlegast sendið fyrirspurn á terra@terra.is