Mikilvægt er að flokka flugeldaúrgang á endurvinnslustöðvum en þá má einnig finna sérstaka gáma undir flugelda við húsnæði Björgunarsveita. Endurvinnslustöðvar Sorpu opna á ný í dag, 2.janúar, þar sem finna má gáma undir flugelda. Stjörnuljós má flokka í ílát undir málma. Ósprungna flugelda skal alltaf meðhöndla og flokka sem spilliefni. 

Í dag, 2. janúar, verða gámar fyrir flugeldaúrgang á vegum Reykjavíkurborgar við eftirfarandi hverfastöðvar:

  • Vesturbæjarlaug
  • Eiríksgötu
  • Kjarlvalsstaðir
  • Laugardalslaug
  • Sogavegur
  • Austurberg
  • Selás í Árbæ
  • Við verslunarmiðstöð á Þjóðhildarstíg í Grafarholti og Spöngina í Grafarvogi
  • Kópavogsvöll
  • á Borgarholti
  • í Digranesi
  • við Salalaug
  • í Vallakór í Kópavogi
  • Tjarnarvelli
  • Urriðarholtsskóla
  • á Álftarnesi
  • Völuteig í Mosfellsbæ

Á Akureyri má finna gáma undir flugelda á fjórum stöðum:

  • Bónus Langholti
  • Bónus Naustahverfi
  • Súlur Hjalteyrargötu
  • Gámasvæðið Réttarhvammi

Á Akranesi má finna gám undir flugelda við húsnæði Björgunarfélagsins við Kalmansvelli 2.

Pappinn sem finna má í ýmsum flugeldum er ekki hæfur til endurvinnslu en ástæðan er leirinn sem er notaður í botninn t.d á flugeldaskottertum. 

Göngum vel um og komum í veg fyrir að flugeldaúrgangur grotni niður og verði að drullu og sóðaskap.