Rafrettur ber að flokka með smáum raftækjum þar sem þær falla undir áhættuúrgang og hvetjum við ykkur til að nýta þau flokkunar ílát sem er að finna í hinum ýmsu matvöruverslunum sem eru að taka á móti batterýum og smáum raftækjum.

Þess skal getið að rafrettur sem settar eru í blandaðan úrgang geta valdið íkveikju því er mjög mikilvægt að flokka þetta með smáum raftækjum, þetta á einnig við þær sem eru einnota.

Nikótínpúða þarf að setja í blandaðan úrgang en dósin/umbúðin er flokkuð með plasti. Mikilvægt er að búið sé að tæma notuðu púðana úr dósinni áður en henni er hent.

Sígarettur fara í blandaðan úrgang líkt og nikótín púðarnir.