- Þjónusta
- Vörur
- Vinnustaðurinn
- Um okkur
- Vottanir
Terra umhverfisþjónusta safnar og tekur við raftækjaúrgangi og kemur honum í réttan farveg. Í ónýtum og úreltum raftækjum leynast bæði verðmæti sem ekki er gott að fari forgörðum og spilliefni sem við viljum ekki fá út í umhverfið. Þess má einnig geta að slík spilliefni geta einnig valdið íkveikju blandist þau við ákveðin efni.
Staðreyndin er hins vegar sú að smærri raftæki eiga það til að lenda í almennu rusli vegna smæðar sinnar og vegna þess að ekki hafa allir hugann við eða hugmynd um hvað er rétt í þessum efnum. Það er einnig líklegt að slík tæki leynist í skúffum og skápum landsmanna, engum til gagns.
Hvað er raftækjaúrgangur?
Undir raftækjaúrgang flokkast allskyns tæki og tól, þar á meðal lítil tæki sem ganga fyrir rafhlöðum.
Í þennan flokk getum við fellt:
... og margt fleira.
Í mörgum tilfellum fylgja rafhlöður litlum raftækjum, með tilheyrandi mengun. Með því að henda þessum og öðrum raftækjum með almenna sorpinu, bæði mengum við umhverfið og hindrum eðlilega og sjálfsagða endurvinnslu.
Hvað er best að gera?
Þægilegast og best að fara með raftækjaúrgang á næstu gámastöð, eða í spilliefnamóttöku eins og Terra Efnaeyðingu. Einnig má skila þeim til raftækjaverslana.
Rafhlöðutunnur er einnig að finna t.d. á bensínstöðvum N1 og Skeljungs, 10-11, Hagkaup, Elko, BYKO, Húsasmiðjunni og Bauhaus.
Hvað gerist svo?
Þegar raftækin eru komin í okkar hendur flokkum við í sundur tæki og rafhlöður og komum hvoru tveggja í viðeigandi meðhöndlun og endurvinnslu. Rafhlöðurnar fara til Frakklands þar sem þær eru flokkaðar eftir efni í kolarafhlöður, nikkel-kadmium, liþíum, nikkel-metal hydride og kvikasilfur. Síðan fer hver flokkur í tætingu og aðgreiningu einstakra efna rafhlöðunnar. Að lokum er málmunum komið aftur í hringrásina.
Smáu raftækin eru send til endurvinnsluaðila í Svíþjóð. Þar eru aðgreindir og endurheimtir málmar og plast og allt nýtanlegt efni fer síðan inn í framleiðsluhringrásina
Höfundur greinar er Jón H. Steingrímsson framkvæmdastjóri Terra Efnaeyðingar.
Móttökustöðin Berghellu 1 er opin
mán - fös: 8:00-17:00
Efnaeyðing er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Vörulager er opin alla virka daga: 8:00-16:00
Móttökustöðin Hlíðarvöllum Akureyri er opin
mán-fös: 8:00-17:00
Þjónustuver er opið alla virka daga: 9:00-15:00
Netspjallið er opið alla virka daga: 9:00-16:00