Terra hefur hlotið viðurkenningu sem eitt af 2% íslenskra fyrirtækja sem teljast til Framúrskarandi fyrirtækja árið 2024

Merki vottunarinnar sýnir viðskiptavinum, starfsfólki og samstarfsaðilum að fyrirtækið er rekið á heilbrigðan og styrkan hátt.

Til að hljóta viðurkenninguna sem Framúrskarandi fyrirtæki þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði. Aðeins þau fyrirtæki sem standast þessar kröfur geta talist framúrskarandi, og vottunin gefur til kynna að þessi fyrirtæki séu betur í stakk búin til að ná árangri og standast álag en önnur á markaðinum.

Skilyrðin eru eftirfarandi 👇

  • Fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3
  • Ársreikningi skal skilað lögum samkvæmt eigi síðar en átta mánuðum eftir uppgjörsdag. Tekið verður tillit til allra opinberra framlenginga RSK á skilafresti
  • Fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo
  • Rekstrartekjur að lágmarki 60 milljónir króna reikningsárið 2023, 55 milljónir króna reikningsárið 2022 og 50 milljónir króna reikningsárið 2021
  • Fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 2 milljarða króna þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni
  • Framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK
  • Rekstrarhagnaður (EBIT) > 0 reikningsárin 2021-2023
  • Jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2021-2023
  • Eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2021-2023
  • Eignir að minnsta kosti 120 milljónir króna reikningsárið 2023, 110 milljónir króna reikningsárið 2022 og 100 milljónir króna reikningsárið 2021

Gaman er að segja frá því að núna er Creditinfo farið að taka tillit til sjálfbærni fyrirtækja 👉 mælikvarðar á árangur fyrirtækja eru að taka miklum breytingum en skýrasta birtingarmynd þessara breytinga eru ríkari kröfur sem gerðar eru til fyrirtækja varðandi sjálfbærni. Hingað til hafa upplýsingar um sjálfbærni fyrirtækja verið óstaðlaðar og af skornum skammti. Þróunin í þeim málaflokki er sem betur fer hröð og líklegt að mælikvarðar fyrir sjálfbærni verði komnir inn í rekstrarbókhald flestra fyrirtækja áður en langt um líður.

Sjá nánar á vef Creditinfo